Bloggsvæði Helgu Felgu !
15.10.2006 22:53:35 / Fóa F.

hu hummmm

Hu hummmm....

 Það er önnur síða sem ég er komin með sko !!! Það er www.barablom.bloggar.is og vil ég að fólk fari þangað heldur en að doka við hér og skoða einhvað gamalt drasl :!: Það eru samt fleiri myndir hér heldur en í nýja albúminu mínu, ég er að dunda mér í því að setja nýjar myndir þar inn...

 Allavega er ég hætt hér að eilífu !!! Takk fyrir mig 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 14:49:26 / Fóa F.

Ferðalag aftur...

Jæja þá er mín nýkomin úr ferðalagi :) Okkar leið lá upp í Hólasjól á föstud. það tóku Elva Dögg og Arnar Páll kærastinn hennar á móti okkur. Þauð fóru svo í frí svo Íris mágkona og Valur tóku við. Við spiluðum Seaquest fram á nótt sem var bara aldeilis gaman. á laugardeginum brunuðum við svo í Þórsmörk sem var bara aldeilis mikið fjör. Kynntumst einhverju fólki og höfðum bara svaka gaman. þessi mynd er einmitt tekin þar,,,

Þarna erum við mæðgur í góðu tómi að gera ookur klárar fyrir varðeldinn og brekkusönginn :D

Svo er annað bara ekkert að frétta svosem. Jú Þjóðhátíðin nálgast og er ég ágætlega spennt yfir henni. Það er nú eítt sem ég hef áhyggjur af ég nenni ekkert að fara að tjá mig um það hér... Þjóðhátíðarlagið er alls ekki það lag sem ég óskaði, bæði er það mjög hátt sungið með erfiðann texta og svo er ekkert nefnt um hátíðina eða eyjarnar á nokkurn hátt...Sorrý en við erum að biðja um svona lag einusinni á ári og væntir maður að það eigi að grípa mann strax og eigi þá að vera í takt við hátíðina,.,.

Annað hef ég ekki að segja í bili en ég ætla að setja inn könnun og spyrja hvort fólk sé að fíla þetta lag. og þá vænti ég þes líka að fólk kjósi takk fyrir :!:


» 13 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 21:58:07 / Fóa F.

MYNDIR AF BILLIE HOLIDAY :)

b_ph00004g

Jæja elsku fólkið mitt nú eru loksins komnar nýtt albúm inn á síðuna mína :haha: Hvorki meira né minna en af drottningunni Billie (Lady Day) Holiday ;) Það er svo gaman að sjá hvað hún bar með sér mikinn þokka á sínum tíma og hvað hún var falleg. Ég veit að mamma á eftir að elska þetta og þá sérstaklega myndina hér fyrir ofan því þarna er hún með litla Chihuahua hundinn sinn ;) Endilega skrifið þið í comments og segið mér hvað ykkur finnst um hana Billie mína...Það væri voða gaman að sjá hverjir vita hver hún var :)

Með bestu kveðju Helga Björk


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 16:17:45 / Fóa F.

Hálendi Íslands...

Jæja þá er mín komin heim af hálendinu. Þetta var alveg einstaklega mikil upplifun í þetta skiptið því við keyrðum fjöll og fyrnindi alveg frá Hólaskjóli (sem er austan við Mýrdalsjökul) og alveg nyrst á Langasjó sem er alveg við rætur Vatnajökuls...þetta var magnað að sjá þetta :) Áður en ég ætla að tala meira um ferðina þá vil ég koma að svolitlu öðru.
 Ég vil þakka öllum þeim sem commentuðu hjá mér á síðustu færslu, þetta er sko fólk með fingur. Ég er alveg föst á því sko ;)
 En í samb. við ferðina mína þá var þetta æðislegt. Ég mæli með því við hvern einasta ferðaling að fara upp í hólaskjól, það er sko alveg hægt að fara þangað á fólksbíl. Þar er hægt að gista í litlum kofum og það er líka tjaldstæði þar og alvega svakalega hreinlegt og fínt, ég tala nú ekki um náttúrufegurðina- JESÚS MINN- hún er rosaleg.
 Þarna er hægt að fara í eldgjá og labba alveg inn að fossinum svakalega sem Tinna Gunnlaugsdóttur fór yfir á hestinum í myndinni Hrafninn flýgur. Þá lá brú þvert yfir fossánna ekki breið og fór hún þar yfir á hesti...Guð minn góður ef þið hefðuð séð kraftinn þarna þá hefðuð þið aldrei gert þetta. En það eru ekki mörg ´ðar síðan brúin hrundi...endilega að skella sér þangað í sumarfríinu því þetta er æðislegur staður :lol:
 Ég ætla ekkert að hafa þetta lengra í bili svo ég segi bara bless. HBG

Þarna er ég í Eldgjá og þarna er fossinn sem Tinna fór yfir á hestinum, en brúin er fallin og það er vel hægt að sjá hvar hún lá yfir. Akkurat í skorunni bak við mig.

Þarna er tókum við mynd alveg upp að fossinum.

Þarna erum við göngugarparnir við stein og fossinn er í baksýn...Surtsey svolítið óskýr. lenst frá vinstri er Elva Dögg, Eiður Smári, Surtsey, ég og Íris mágkona mín. Elva Dögg og Eiður eru börnin hennar :) Elva Dögg sér um Hólaskjól og mæli ég eindregið með að allir fari þangað í tjaldútilegu í sumarfríinu :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 16:23:55 / Fóa F.

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir !!!

Ég ætla að byrja þennan pistil á því þegar fólk hefur ekki tíma til að tala við mann, eða er maður svona afskaplega leiðinlegur að það er kannski ekkert skrítið...

Í fyrsta lagi þá fer maður ekki út í búð án þess að sjá fýld og leiðinleg andlit einhversstaðar. Þessi er í fýlu út af þessu svo hann fer þá bara út í banka í skítafýlu og leyfir öllum að finna fyrir því að ekki liggi vel á honum þann daginn. Af hverju rífur fólk sig ekki upp úr drullunni og gerir einhvað sniðugt ef að erfiður dagur er að baki, eins og fara að kaupa sér einn kleinu pakka, fara í viltu vinna milljón spilið með fjölskyldunni eða einfaldlega að skrá sig í taflfélagið svo einhver dæmi séu tekin.
 Gott dæmi,,,ég fer út í leiðangur í dag og svína á einn bíl, sem er alveg óvart í mínu tilfelli svo ég brosi að bílstjóranum og heilsa í auðmýkt minni. Það vill ekki betur til en það að ég fæ ekkert nema skeifu og skítafýlu til baka. Ég er ekki frá því að ég hafi móðgast örlítið og ég viðurkenni að hafa hugsað á sömu mín.  að hann mætti hoppa upp í rassgatið á sér og ég myndi ekki kippa mér upp við það.
 Af hverju erum við ekki eins og færeyingar að brosa bara á móti og elska náungann og ég tala nú ekki um nægjusemina í færeyingunum...ég ætla by the way pottþétt að kaupa mér sumarhús þar þegar ég vinn í lottóinu. Af hverju þarf fólk að vera svona leiðinlegt ? ég er nú svolítið fordómafull út í suma og er hreinlega komin með ógeð á nokkrum kunningjum mínum. Já já ég er hundleiðinleg með víni og sé eftir mörgu sem ég hef gert á þessum djömmum mínum en það er ekki þar með sagt að ég er ekki búin að bæta mig ég fer sama sem aldrei út núorðið að djamma vegna þess að ég er komin með upp í kok á þessum eftir sjám og þessir svokölluðu vinir nenna ekki að hafa samb. vegna þess að maður er ekki að djamma...Sorrý þeir sem að eiga að taka þetta til sín, þetta er bara satt ! Ég reyni að hafa samband og ekkert gerist, það er ekki hægt að hafa samband við mig vegna þess að ég er ekki alltaf full...Hvað er það ?? Er ég ekki nógu góð fyrir þetta lið ? er ég leiðinleg edrú ? Er það vegna þess að ég er komin í sambúð ? það er einn og einn sem nennir að hringja og bjóða mér í partý, en það breytist allt þegar ég segist ekki djamma þá bara ok so sorrý edrú fólki er ekki boðið...þið getið átt ykkur svo nú er ég ákveðin í því að slútta þessu auma samb. við þessa so called freinds og fara að snúa mér að einhverju allt öðru. Eins og stofna félag fyrir áhugamenn á slönguspilinu eða því um líkt...ég nenni ekki að eiga í basli við að reyna að hafa samb. meira, því maður sér hvað maður á þegar á reynir...
Takk í dag                            
untitled

» 28 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 14:28:10 / Fóa F.

Vikan búin strax...

Jahérna hérna hér...vikan bara búin strax, ókköp er a vida :D Allavega finnst mér þessi vika búin að vera rosalega fljót að líða ég er í sífellu að spyrja mig hvers vegna :$ Er það vegna þess að ég var í fríi úr vinnunni á mán og þri ? eða er það vegna þess að ég var mest allan partinn uppi á landi í síðustu viku ? er það vegna þess að það verður SVAKALEGT fjör næstu helgi í afmælinu hans Eyþórs og goslokin ? er það vegna þess að ég er að fara í frí eftir goslokin? er það vegna.......? Maður getur endalaust spurt sig hvers vegna, en hvers vegna er ég að spurja mig að þessu? jah maður spyr sig ...:D

En að allt öðrum sálmum, er ekki kominn hugur í fólk út af Þjóðhátíðinni? það var allavega spilað Þjóðhátíðar lag á Fm í morgun. Ég neita því ekki að maður fékk nett kítl í magann, jeminn hvað þetta á eftir að vera mögnuð hátíð ár,,,við skulum bara vona að veðrið verði hið skaplegasta þetta árið því ekki er nú búið að vera besta veðrið síðan þessi sumardagur fyrsti var...hvernig er það eiginlega er ekki hægt að tala við einhvað yfirvald um að seinka þessum degi til að láta fólk ekki vera að bíða eftir sumrinu í svona djöfull langann tíma ?? jæja þá er það ykkar að svara öllu þessu spurningar flóði mínu :haha: með Þjóðhátíðar kveðju úr eyjunum--> Helga Björk

800px-Earth-lighting-summer-solstice_EN


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 14:17:21 / Fóa F.

Hermaður litlu deildarinnar :)

Chipmunk

Mesta krútt í heimi :!: Ekki mundi ég vilja lenda í honum þessum sko...


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 17:52:52 / Fóa F.

Beatles

021_HOT-695~The-Beatles-Posters

Let me take you down couse i´m going to-Strawberry fields-nothing is real.
It´s nothing to get hung about- Strawberry fiels forever

Ég er gjörsamlega með þetta lag á heilanum núna....ALGJÖR SNILLD :!::!::!:


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 16:48:48 / Fóa F.

Augn litir á husky :)

http://www.huskycolors.com/eye.html

Þetta eru alveg merkilegar verur :) Sjáið litina !


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 20:25:09 / Fóa F.

Hæ hó og jibbý jei...

Hæ hó og jibbý jei
og jibbý jei
það er kominn
17. Júní :S
 Guð hvað þetta er ekki skemmtilegur dagur ef maður á ekki krakka !! Það er sko alveg hreint út sagt alveg satt...Ég fór niður á Stakkó með vinkonum mínum í dag og bara ein af þeim á barn sem er frábært nema að við stóðum og horfðum á mjög leiðinlega, súra og gamla dagsskrá. Lúðrasveit Vestmannaeyja var að spila sem var allt í lagi nema að það mættu fleiri úr stórsveitinni mæta, nýji bæjastjórinn var með ræðu eins og góðum bæjarstjóra sæmir ( ef þetta var ekki bara sama ræða og var á Sjómannadaginn svei mér þá) og fjallkonan sem las ljóð eins og blessaða kerlan hefur gert síðan ári fyrir lurk...ég og stöllur mínar tókum saman andlitin á okkur og hlussuðumst inn á Caffi María til að bjarga deginum...
 Svo tók raunveruleikinn við og ég fór að dúllast með hundunum mínum sem er alltaf jafn yndislegt :lol: Svo dagurinn var ekki alslæmur ohhh....djöfull...þetta hefði reddast ef að ég hefði farið í skrúðgönguna ----> NOT !!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 22:22:42 / Fóa F.

Kurt Cobain...

Ég er búin að hugsa mikið til þessarar elsku einhvernveginn. Ég hélt að ég væri vaxin upp frá honum ? Hvað er að gerast ???


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 17:50:19 / Fóa F.

Hellú...

Guð hvað er alltaf brjálað að gera hjá manni, nú er sjómannahelgin runnin upp og var nú bilað að gera hjá manni. Bæði það að eftir fermingar helgina hjá Eyrúni Evu þá kom Þórey Rut með okkur heim og hún er búin að vera hérna í 10 daga eða svo og er að bíða eftir flugi núna. Ballið var yndislegt það var æðislegur matur, ágætis skemmti atriði ég auðvitað kom fram með blessuðum kórnum og gekk það bara fínt sko nema að maður var búin að fá sér örlítið í tánna hehe...:) Þetta var svo gaman hjá okkur nema undir restina var Eyþór kominn upp á borð að dansa og hrundi niður með þeim afleiðingum að hann er að drepast í löppinni ræfillinn híhíhí...
 Surtsey fer frá okkur núna í sýningar þjálfunina á miðvikudaginn svo maður á ekkert eftir að sjá hana næstu vikuna eða tvær. Ég á eftir að deyja í þennan tíma sem hún er ekki hjá mér...DJÖFULL á ég eftir að sakna hennar maður !!! En ég reyni að hugsa jákvætt um þetta líka því í þennan tíma sem Surtsey er í burtu þá fær Gígja mikla athygli því mér finnst hún vera búin að vera svolítið útundan svo ég fæ að dúlla við hana í þennan tíma... Verð að fara bæ...

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 22:09:57 / Fóa F.

Hvernig líst ykkur á þessa :) ???

Ég og Móri Rafn, drengurinn sem ég átti og sem ég sakna svo HRIKALEGA HEITT :cry::cry::cry:


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 15:39:19 / Fóa F.

Þetta er HRIKALEGT !!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 15:29:35 / Fóa F.

Hundar, hundar og aftur hundar :)

Það er ekkert annað að frétta nema hundar, hundar og aftur hundar :) Eins og gefur að kynna þá setti ég inn hérna skoðanakönnun og það er hörmuleg niðurstaða að mér finnst sem kom út úr henni, Ég hefði bara ekki trúað því hvað það eru margir sem vilja ekki hunda hérna, þvílíkir fordómar´gagnvart okkur hundaeigendum hérna á eyjunni...

 Allavega þá er búið að vera svona allt og ekkert að gera hjá mér, Ragga systir kom um helgina sem var alveg frábært nema að hún greyjið er búin að liggja bara mjög slöpp heima hjá mömmu :cry: En á föstudags nóttina þá komu Laufey Rós og karlinn hennar hann Höddi í heimsókn til mín með hundana sína sem var æðislega gaman, ég tók nefnilega nokkrar myndir af þeim og setti inn á heimasíðuna hennar Surtseyjar :D Hún er alhjört písl við hliðina á þessum risum :) www.surtsey.dyraland.is

Kosningar voru um helgina og vann Sjálfsæðis flokkurinn með yfirburðum 4+3 það er allt í lagi svo sem:$ En þetta er bara svona.

Við famelían förum í fermingu hjá Eyrúni Evu, miðlungsins hans Eyþórs um helgina og fá tíkurnar að sjálfsögðu að koma með...við verðum í bústað í Skorradal sem tengdó eiga og ætlum við að slappa alveg rosalega mikið af og hafa það gaman öll saman í skóginum :) og gera alveg helling af skemmtilegum hlutum...

En allavega ætla ég að kveðja í bili og verð duglegri að blogga næst :)8)

Þarna er Laufey vinkona mín með Gígju mína í fanginu, og sjáiði hvað Gígju líður vel hjá henni :):lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5